This Traveler IQ was calculated on Sunday, March 29, 2009 at 10:31PM GMT by comparing this person's geographical knowledge against the Web's Original Travel Blog's 3,851,586 travelers who've taken the challenge.
Monday, 30 March 2009
skemmtilegasti leikur í heimi
Wednesday, 18 March 2009
Afsakið
Hér er smá uppfærsla:
Ég er að vinna lokaverkefnið mitt í læknagarði, það gengur svona lala eins og lokaverkefni almennt ganga held ég. Hef eiginlega engan tíma né áhuga núna til að taka myndir, finnst allar ljósmyndirnar mínar ljótar núna :( Það breytist vonandi bráðum. Ég á samt eftir að setja heilan bunka inn á flickr. Vonandi hefst það fyrir árslok. Annars var ég að byrja á twitter.com/hronnsla veit ekki alveg af hverju það ætti að ganga betur en að blogga.
Sigurður Gísli er að vinn hjá Össuri og er í hálfu námi. Strákurinn er alltaf jafn upptekinn. Núna er hann að smíða rafmagnsbíl á kvöldin og um helgar og þegar hann er ekki í því spilar hann fótbolta með fc dragon. Allir að fylgjast með töffaranum á vellinum í sumar. Annars átti hann afmæli í síðustu viku, the big 30 og ætlar að halda uppá það í maí þegar hægist um.
Vonandi líða minna en þrír mánuðir í næstu færslu.
Thursday, 25 December 2008
Sunday, 16 November 2008
Að lokum kemur ein lítil mynd af okkur hjónaleysunum með 50 kílóa túnfiskflykkið sem við veiddum á Cook:) Ekki amalegt eintak það!
Wednesday, 5 November 2008
Coromandel skagi
... Alveg heil færsla á mánaðar fresti. Við höfum brallað ýmislegt á þessum mánuði og hér kemur fyrsti hlutinn.
Fyrir nokkrum vikum fórum við í 2ja daga ferð útá Coromandel skaga en hann er um 200 km frá Auckland. Við ætluðum að byrja á því að klífa Castle rock en útsýnið af toppnum á víst að vera frábært. Við komumst því miður ekki svo langt vegna vegavinnu og einkavega. Við héldum að við værum á leiðinni að fjallinu en í staðin keyrðum við í gegnum gamalt skógarhöggssvæði og allsstaðar komum við að lokuðum einkavegum.
Það er ótrúlega algengt hér að náttúruperlur séu í einkaeigu og fólk þurfi að borga til að sjá þær. T.a.m. er stærsti goshverinn á Nýja Sjálandi í einkaeigu sem og virkasta eldfjallið hér, White Island. Þetta er fáránlegt og ég er búin að pirrast mikið yfir þessu. Ímyndið ykkur ef þið mættuð ekki klífa Esjuna eða horfa á strokk gjósa án þess að punga út seðlum í hvert skipti.
Alla vega.... þegar Castle rock var úr sögunni héldum við rúntinum áfram.
Við tókum stutta göngu í gegnum skóglendi og skoðuðum Kauri tré en þau verða víst mjög gömul og stór.
Síðan var haldið á ströndina. Eftir um hálftíma göngu komum við niður að New Chums beach, ég held að ég hafi aldrei komið á jafn fallega strönd og í þokkabót vorum við næstum því ein allan tímann sem við vorum þar.
Eftir frábæran dag á ströndinni fórum við til Whitanga en þar áttum við pantaða gistingu, eigandinn fann svo til með okkur útaf ástandinu á Íslandi að hann gaf okkur „Íslendingaafslátt“. Við rifum okkur á fætur um 6 leytið og brunuðum niður á Hot water beach, við þurftum að vera snemma á ferðinni útaf háfjöru. Undir ströndinni er 60°C heitt vatn og maður getur grafið sér holu í sandinn og notið þess að sitja í heitum potti alveg þangað til flæðir að aftur.Um níuleytið vorum við aftur komin á veginn á leið að skoða Cathedral Cove.
Eftir það var klukkan rétt að nálgast 11 og við áttum allan daginn eftir (sniðugt að vakna svona snemma). Við fórum aftur til Whitianga og Sigurður Gísli skellti sér á sjókayak en ég lá á ströndinni og las. Svo dúlluðum við okkur bara í afslöppun þar til við héldum aftur til Auckland um kvöldmatarleytið. Þessi ferð var algjört æði, veðrið lék við okkur og við fengum smá lit (meira rauðan en sólbrúnan).
Wednesday, 8 October 2008
Heimur versnandi fer....
Annars er allt gott að frétta héðan, mér gekk alveg ágætlega með stórt verkefni sem ég var að klára í skólanum og við fórum í grillveislu, sem var haldin innandyra vegna rigningar. Veðurspáin hérna er virkilega slæm, þeir spá stutt fram í tímann, ekki mjög nákvæmt og iðulega vitlaust. Í fyrrakvöld birtist maður frá almannavörnum í sjónvarpinu og sagði fólki að ganga frá lausamunum þar sem von væri á stormi kvöldið eftir. Við kíktum því á veðurfréttir um morguninn og þá var spáin fyrir Auckland "mostly fine" og ekki minnst einu orði á stormviðvörun úr fyrri spá. Mér skilst að þetta sé ekki vegna þess að allir veðurfræðingar hérna séu illa gefnir, heldur eru veðurskilyrðin hérna víst sérstaklega ófyrirsjáanleg.
Til þess að leggja okkar af mörkum í lausafjárkreppunni ætlum við að flytja heim 24 milljónir nýsjálenskra dollara sem til stendur að vinna í lottóinu hérna á laugardaginn. Ég myndi segja ykkur hvað það er í íslenskum krónum, en það er víst eitthvað á reiki núna.
Framundan hjá okkur er tvítugsafmæli hjá stelpu sem við fórum að kafa með um daginn, og næst þegar sólin skín (án rigningar) stendur til að fara niður á strönd. Myndirnar á Flickr verða uppfærðar fljótlega.